Aðalvalmynd

Auglýsing

Myndir

Gagnasafn

Leit

Um migSilja Dögg Gunnarsdóttir

Sló inn afmælisdaginn minn á facebook og fékk þessa umsögn. Mér finnst skemmtilega mikið til í þessu.......

16. desember.

You always follow the good and the right instead of listening to your heart. Another word, you are a perfectionist. You care for every word people say about you. You often seen isolated while you are, by nature, curious and a dreamer who is ready to get over the edge to make your dream comes true. Your Love, You often fall in love with a person who is much different from you, in age and other aspects. Your relationship grows on friendship. Love at fist sight is not your style.

Annars er ég á leið í Húsafell um helgina með góðum vinum. Það verður eflaust ótrúlega gaman en ég er með nóg af þorramat í farteskinu, þó ekki súrmeti.

Svo ég tjái mig nú aðeins um pólitíkina, sem ég er annars ekki vön að gera á þessari síðu, þá gleðst ég yfir nýrri forystu í Framsókn og hef endurnýjað trú mína á flokknum. Nú á hann allavega einhverja möguleika. Svo er bara spurning hverjir verða í framboð hér suðurfrá...

Ég styð eindregið mótmælin á Austurvelli en mótmæli um leið ofbeldi og skemmdarverkum.
Ég skil reyndar ekkert í því af hverju það er ekki búið að fangelsa eitthvað af þessu bankaliði og setja yfirmenn í Seðlabanka og í Fjármálaeftirliti frá embættum. Menn sitja þarna áfram sallarólegir á meðan tæplega 400 hundruðu manns á Selfossi eru eltir upp og handteknir vegna ógreiddra gjalda... Ekkert af þessu kemur heim og saman í kollinum á mér.

Annars vegar finnst mér sorglegt hvernig komið er fyrir okkur, ömurlegt að sjá þetta ofbeldi í sjónvarpinu, reiðina og allt það. En hins vegar býður þessi staða upp á nýja tíma, endurskoðun og vonandi betra Ísland. Nú þarf að nota á tækifæri og stinga á spillingarkýlin og koma í veg fyrir að svona nokkuð gerist aftur. Þetta er hluti af því að þroskast sem þjóðfélag en það eru aðeins um 60 ár síðan við vorum skilgreind sem þróunarríki! Ótrúlegt hvað við höfum komist langt, þrátt fyrir allt.

Maður heyrir í fólki sem óttast yfirvofandi breytingar. Frasar sem þessir; "Ef núverandi ríkisstjórn fer frá völdum og ráðandi flokkar, hvað tekur þá við...? Kannski eitthvað ennþá verra...?"

Hver veit. En í mínum huga er þetta eins og að vera í slæmu hjónabandi. Ef hjónabandið er orðið það slæmt að staðan er vonlaus, þá verður maður að slíta því-no matter what. Það borgar sig ekki að hanga í vonlausu ástandi vegna hræðslu við hið óþekkta - maður á að láta vaða!

Ég hlakka amk til kosninganna í vor því ég geri ráð fyrir að maður fái að sjá ný andlit á framboðslistum og eignist e.t.v. trú á íslensk stjórnmál að nýju.

Kær kveðja og góða helgi alle sammen!

Skemmtileg helgiSilja Dögg Gunnarsdóttir

Góðan daginn.

Nú er helgin að baki. Hún var mjög góð hjá okkur öllum. Sóley fékk að vera hjá ömmu í Grindó á laugardaginn og við Þröstur vorum að brasa ýmislegt með Ástrós Ylfu. Fórum m.a. upp í nýopnaða Virkjun á Vellinum þar sem verið var að kynna nýjar námsleiðir hjá Keili og námsframboð m.a. hjá FS og MSS. Margt mjög sniðugt og alveg nýtt á Íslandi. Þessi Virkjun er frábært framtak og hið sama má segja um Keili. Auðvitað tekur tíma að uppskera en þegar hún kemur þá verður hún ríkuleg, segi ég.
Eitt það besta sem gat hent þetta svæði hér var að herinn færi. Nú horfir fólk til framtíðar, eigir ný tækifæri og það er virkilega spennandi.

Ástrós Ylfa fann sykurmolakar á kynningunni og nældi sér í nokkur skipti. Spurði voða fallega; "baja einn?" með blíðustu röddinni sinni og fallega augnaráðinu. Auðvitað sagði mamman já. Svo kom hún eftir smá stund með annan: "baja einn enn"...ægilega sæt...ætli hún hafi ekki haft svona 6 stk upp úr krafsinu...svona er þetta;-)

Við kíktum á flottan rólóvöll á Vellinum. Sú litla ætlaði aldrei að þora að renna sér í gegnum rennibrautarrör, skrækti móðursýkislega og argaði "Mamma nei"! (NB ég var ekki að reyna að ýta henni niður, heldur beið niðri...). Lét sig að lokum falla afturábak svo hún þyrfti ekki að renna niður. Gerði aðra tilraun þegar pabbi kom aðvífandi. Fannst gott að hafa hann uppi hjá sér til öryggis. Lét sig loksins gossa og var ægilega rogginn þegar hún kom niður:-)

Við gáfum líka öndunum brauð. Þar hittum við ömmu og afa sem voru í gönguferð. Ástrós vildi nú ekki mikið tala við þau en talaði svo um þau næstu tvo daga. Rifjaði upp hitt og þetta um ömmu og afa...Að lokum var tekið til í skúrnum og bíllinn þrifinn í skúrnum (lúxus að eiga aftur bílskúr). Nú og ekki má gleyma Bónus ferðinni en það er nú venjulega einn af hápunktum vikunnar hjá Ástrós Ylfu. Það sem henni finnst gaman að fara í Bónus. Hún græddi líka helling að þessu sinni; þegar við vorum að bíða eftir að Þröstur kæmi að sækja okkur þá fann hún slatta af hlaupi einhvers staðar og tróð upp í sig og fyllti vasana. Ægilega ánægð. Með fullt af nammi. Fann líka gullpening sem hún gaf pabba sínum þegar hann kom. Svo sannarlega ferð til fjár fyrir hana. Þannig að þetta var viðburðaríkur og skemmtilegur fjölskyldudagur.

Við Ástrós skelltum okkur í sunnudagaskólann í Keflavík í gærmorgun. Ég hef verið að fara með hana í Njarðvíkurkirkju undanfarna mánuði og það hefur ekki gengið nógu vel. Hún er 90% tímans að vesenast; fara bakvið altarið, klifra ofaní gryfju við gluggann, stelast í predikunarstólinn, hlaupa fram og stela kexi...o.s.frv. Nennir ekkert að fylgjast með. Svo fórum við semsagt í Keflavíkurkirkju í gær og þá snerist dæmið alveg við. Hún sat 90% tímans og fylgdist með af áhuga. Prógram og stjórnendur sem höfða mun betur til hennar þannig að ég er að hugsa um að halda áfram í Keflavík með hana.

Dagurinn í gær var svo fagur. Glitrani hvít mjöllin lá yfir öllu og fjólubleik birtan lýsti upp himininn. Snæfellsjökull tignarlegur við sjóndeildarhringinn. Ég hugsaði með mér; ég bý svo sannarlega í paradís. Svona er hún, friður og fegurð.

Við fórum út að leika með hundinn svo vildi Ástrós Ylfa, að eigin frumkvæði: "fara að lúlla sér". Hún fékk það en svo drifum við okkur með hana í bíó þegar hún vaknaði um fjögurleytið. Sáum Skoppu og Skrítlu. Fyrsta bíóferðin hennar. Ég hafði vissar efasemdir. Hélt að hún gæti nú ekki setið í bíói í eina klukkustund. En jú, hún neitaði að fara þegar myndin var búin. Varð frekar reið þegar ljósin voru kveikt...vildi sjá meira. Þannig að það er aldrei að vita nema önnur bíóferð sé á dagskrá bráðlega.

Þröstur fór að skjóta svartfugl í gær með kunningja sínum. Þeir voru allan daginn á sjónum og náðu nokkrum fuglum. Komu sælir í land. Ég er að venjast svartfuglinum. Hann er ágætur ef maður marinerar hann í nokkra daga, 2-5, í malti í ísskápnum. Svo bara að krydda og steikja, ekki samt of mikið því þá verður hann ólseigur.

Læt þessari upptalningu lokið í bili og hafði það öll sem best. kv. Silja

Gaman að elda með pabbaSilja Dögg Gunnarsdóttir

Image Hosting by PictureTrail.com

Fleiri myndir á myndasíðunni minni!!!!!!!!

Jólamyndir koma síðar. Við erum ægilega löt að taka myndir.....Embarassed

Góður laugardagur í dag. Fórum í sund í morgun, við Sóley kíktum a útsölur eftir hádegi og hún fann tvennar svaka töff gallabuxur:-) Svo fór mín að baka og nú elda kvöldmat. Maður þarf ekki að gera neitt á þessu heimili:-)

AnnállinnSilja Dögg Gunnarsdóttir

Góðan daginn góðir hálsar.

Nú er komið að annálnum, sem er ágætt fyrir mig að skrifa því þá hressi ég um leið upp á minnið...jú, jú, og sei, sei, maður er nú kominn á fertugsaldur;-)

Janúar:
Var afskapleg viðburðalítill. Ég var heimavinnandi og á fullu að leita að vinnu og dagmömmu. Fann loksins hvoru tveggja.

Febrúar:
Byrjaði að vinna hjá Hitaveitu Suðurnesja og Ástrós Ylfa fór í pössun hjá henni Anítu á Vallarheiði. Það voru mikil viðbrigði fyrir okkur báðar en hið besta mál.

Mars:
Byrjað að grafa fyrir húsinu okkar.

Apríl:
Húsaframkvæmdir héldu áfram á fullu og einingarnar komu í lok mánaðarins. Þá fór að komast einhver mynd á þetta þegar veggirnir komu upp.

Maí-ágúst:
Framkvæmdir héldu áfram á fullu. Ég fór í sumarfrí. Heima að byggja og leika við litlu kellingu. Kíktum eitthvað vestur í bústað. Ástrós byrjaði á leikskólanum Holti.

September:
Förum til Spánar með Hitaveitu Suðurnesja í eina viku og Ástrós Ylfa dvelur hjá ömmu og afa í Njarðvík á meðan. Passar allan tímann upp á tvær dúkkur, sem hún tekur með sér hvert sem er og kallar mömmu og pabba. Styttist í innflutning og skilum íbúðinni á Hjallaveginum. Sóley flytur til okkar og við flytjum öll saman inn í nýja húsið.

Október-nóvember:
Bankahrun og kreppa. Keppumst við að koma okkur fyrir í húsinu og venjast því að vera með tvö börn í skóla og leikskóla. Margt nýtt fyrir okkur á haustmánuðum.

Desember:
Aðventufílingur. Bónorðið kom á afmælisdaginn minn 16. des. og við settum upp hringana:-)

Þetta var svona það helsta. Ég man nú eiginlega ekki mikið meira í bili...en, það er allavega búið að vera nóg að gera. Auðvitað hefur ýmislegt leiðinlegt gerst líka, en yfir það heila hefur þetta verið gott ár á margan hátt. Gróska og endurskoðun, myndi ég segja. Vonandi kemur uppskeran svo á næsta ári.

Kv. Silja

Teljari

Innskráningar kubbur

Síðurnar mínar

Bloggarar

Smáfólkið