siljadogg.bloggar.is
JćjaSilja Dögg Gunnarsdóttir
Þetta var nú aldeilis löng pása. Ég hef aldrei tekið mér svona langa pásu síðan ég byrjaði að blogga fyrir þremur árum síðan. Kannski merki um að fara bara að hætta þessu?Nú sit ég hér í rólegheitum, litla sofandi úti og Þröstur og Sóley að hjálpa Danna frænda að fara með rusl. Hann er á fullu að gera upp íbúð á neðri hæðinni hjá sér því leigjendurnir flytja inn um næstu mánaðarmót og þá verður allt að vera klárt.
Okkar íbúð á Borgarveginum er að verða tilbúin. Innréttingarnar komnar, perketið komið á gólfin en enn eftir að klára að setja upp ljós og fleira smotterí, klára forstofuna o.s.frv. Ætli við eigum ekki svona 2 vikur eftir til að gera hana alveg tilbúna.
Ég var að tala við gröfukarlinn. Þeir moka í sökkulinn í næstu viku og svo mæta pípararnir seinnipart vikunnar að leggja allar lagnir. Þá má koma með veggina...Þetta silast svona áfram eitt af öðru.
Mér líkar alveg hrikalega vel í vinnunni. Árshátíðin var frábær og nú er ég að fara á tölvunámskeið. Verð í nokkrar vikur að bæta við mig þekkingu. Ég hef ekki unnið á tölvur í fimm ár og forritin hafa breyst talsvert í útliti og nýjir möguleikar búnir að bætast við. Ég finn þvílíkt fyrir því hvað ég hef misst úr þannig að námskeiðið ætti að fylla upp í eyðurnar hjá mér.
Við ætlum að hafa það rosa gott um páskana. Árdís systir Þrastar er m.a. búin að bjóða okkur að koma til þeirra í bústað sem þau eiga við Heklurætur. Ég býst við að við þyggjum það góða boð
Ástrós Ylfa braggast vel en er búin að vera með hvimleitt kvef, augnsýkinga og eyrnabólgur í vetur. Svo fékk hún maga- og gubbupest í bland við allt hitt. Ekki gaman en hún er ægilega dugleg. Búin að ná sér af gubbinu en við þurfum að fylgjast vel með eyrunum. Ég er að reyna að draga að setja hana aftur á fúkkalyf. Nú fær hún bara verkjastíl þegar hún fer að sofa og það virðist duga ágætlega í bili.
Hún er svo dugleg að leika úti. Við vorum t.d. í allan morgun úti á róló og gengum svo til mömmu og pabba. Kíktum aðeins í kaffi þar. Voðalega huggulegt. Dagmömmurnar eru duglegar að leyfa þessum elstu að vera úti á palli hjá sér og stundum rölta þær með þau á rólóinn sem er við hliðina á húsinu. Frábær aðstaða og Ástrós nýtur sín í botn. Alltaf rjóð og kát þegar ég sæki hana og glöð þegar hún mætir til þeirra á morgnana. Hið besta mál.
Svona er líf mitt í hnotskurn þessa dagana...Hey, gleymdi að segja frá að ég fór í sumarbústað sl. helgi á Laugarvatni, með vinafólki okkar; Steinari og Caroline og bróður Caroline og fjölskyldu hans. Dásamlegt. Sannkallað jólaland. 30sm jafnfallin snjór yfir öllu og sólskin. Á kvöldin kveiktum við á kyndlum á pallinum og lágum í pottinum. Gerist ekki betra.
Ég bið ykkur vel að lifa. Knús, Silja