Ađalvalmynd

Auglýsing

Myndir

Gagnasafn

Leit

HuggulegheitSilja Dögg Gunnarsdóttir

Mikið rétt, við mæðgur bökuðum um helgina. Gerðum fimm sortir sem heppnuðust dæmalaust vel. Sóley veiktis því miður síðdegis á laugardaginn. Fékk 40 stiga hita sem rénaði svo þegar leið á nóttina. Varð ekkert meira veik.

Sú litla hefur verið með í eyrunum, er búin með einn fúkkalyfjaskammt en er ekki orðin góð. Við förum með hana til eyrnalæknis á morgun. Hún er voðalega góð á daginn og ekki með hita en svo versnar í því þegar hún leggst út af á kvöldin. Ég varð að gefa henni verkjastíl á miðnætti í gær því hún hrökk alltaf upp með andfælum greyið litla. Ég fékk eyrnabólgu þegar ég var lítil og ég man ennþá eftir hvað þetta var sárt. Miklu verra en tannpína.

Dótið okkar er komið frá Spáni. Fengum tilkynningu um það í dag. Nú þurfum við bara að gera ráðstafanir til að koma því hingað heim. Spurning hvort við drögum það fram yfir helgi. Þröstur er nefnilega að fara í próf á laugardaginn, tvö próf í rafmagnsfræði. Lítill tími í að gera annað en það í bili. Svo er hann að vesenast í hárkarlinum þessa dagana og ýmsu öðru. Nóg að gera.

Ég var uppi í kirkju í morgun með litlu skutlu. Þar er mömmumorgnar á þriðjudögum. Virkilega notalegt og góður hópur sem hittist þar. Við erum mátulega margar, um 6-8 mömmur með börn á aldrinum nokkurra mánaða til 2ja ára. Ástrós fílaði sig í botn en var svo orðin ægilega þreytt um hádegisbilið. Nú steinsefur hún inni í herbergi.

Smá jólapæling. Hvað finnst ykkur um að skreyta svona snemma?
Ég verð að segja fyrir mig að mér finnst voðalega skrítið að sjá bæinn skreyttan um miðjan nóvember og enn skrítnara að sjá aðventuljós í gluggum, svo ég tali nú ekki um suma sem eru búnir að skreyta húsin sín hátt og lágt...jólasveinar í görðum, seríur í hverjum glugga á á þakskeggjum o.s.frv. Má þetta ekki alveg bíða a.m.k. fram í desember? Mér þykir þetta fallegt og skemmtilegt en alls ekki tímabært.

Mig langar á góða tónleika í desember. Með hverju mæliði?

Hún er vöknuð. Kveð í bili.


Hvar eru jólin?Silja Dögg Gunnarsdóttir

Leitin að jólunum:

Eru jólin í BYKO?
Eru þau í IKEA?
Eru þau kannski í Toys r us?

Nei, ég bara spyr. Síðast þegar ég vissi voru nefnilega í hjartanu.

Jólastuđ og bóklesturSilja Dögg Gunnarsdóttir

Ég er komin í jólastuð. Er farin að spekulera í jólasmákökunum. Fór inn á heimasíðu Nóa Síríus: www.noi.is og ég held ég geti svarið fyrir það að þar eru bestu uppskriftirnar. Valdi fjórar af handahófi og ætla að láta slag standa um helgina þegar Sóley kemur. Þá getum við dundað okkur í eldhúsinu og sent litlu og pabba út í göngutúr á meðan. Þau koma svo bara inn til að smakka;-)

Ég hef aðeins verið að skoða bókatíðindin og velt fyrir mér hvaða bækur mig langar til að gefa. Við Þröstur eigum bæði stórar fjölskyldur og okkur langar því að gefa margar gjafir. Mér finnst svolítið mikið að hver bók kosti um 3000 krónur. Ekki kannski mikið miðað við kostnað, svona bisnesslega séð, en mikið fyrir budduna þegar manni langar kannski að kaupa amk 10 bækur fyrir utan allar hinar gjafirnar...

Ég kíkti í nýja blaðið 24 stundir í morgun. Þar er Ellý "þula" með fastan þátt aftan á blaðinu um "fræga" fólkið. Mikið fannst mér ósmekkleg umfjöllun hennar um sönghópinn Luxor, svo ekki sé meira sagt. Ég væri allavega gríðarlega móðguð ef ég væri þeir. Hún fjallið um viðburð sem þeir komu fram á, og fór svo að fantasera um að það hefði verið meiriháttar ef þeir hefðu farið úr fötunum, og staðið þarna á sviðinu sveittir og lafmóðir með míkrafónana, eins og hún orðaði það.... Átti kannski að vera fyndið, en ég hef ekki húmor fyrir þessu.

Ég fór á fyrstu boxæfinguna mína í gær. Ég ver að viðurkenna að mér kveið fyrir að mæta. Hélt að ég myndi ekki lifa æfinguna af. En þetta var meiriháttar og ég ætla rétt að vona að mér takist að halda áfram. Þröstur er búin að lofa að vera heima þegar æfingarnar eru svo að ég komist örugglega. Þetta var ógeðslega erfitt, en gaman. Frábær einstaklingsíþrótt. Ég var elst, en mér finnst það fínt. Leist vel á krakkana sem ég var að æfa með og fínn þjálfari. Aftur æfing á morgun. Merkilegt með vinstri handlegginn á mér, það er eins og hann sé ekki hluti af líkama mínum. Svo grútaumur að það er ekki fyndið. Ég næ að kýla með hægri en sá vinstir lætur varla að stjórn. Frekar fyndið að vera með svona "fylgihlut" hangandi út frá hægri síðunni.

Ég var að byrja á bók í gær sem heitir Arabíukonur eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamann. Hún hefur dvalið í Mið Austurlöndum og lært arabísku. Þessi bók er viðtalsbók við nokkrar konur sem búa í fjórum löndum; Sýrlandi, Jemen, Egyptalandi og Óman (minnir mig). Með bókinni vill hún varpa ljósi á hversu ólík þessi lönd eru innbyrðis og hversu ólíkar konurnar eru þar sem vestrænir fjölmiðlar hafa viljað setja þær allar undir sama hatt; kúgaðar með blæjur. Fróðleg bók sem víkkar sjóndeildarhringinn örlítið.

Ætli maður kíki ekki í Rúmfatalagerinn og Ikea næstu daga; mig VANTAR kerti með jólailmi (aldrei nóg af kertum á aðventunni), box undir smákökurnar og svo fylgir ýmislegt smálegt með, ef ég þekki mig rétt; smá jólaskraut og svona... Ég verð svo líka að fara að kaupa nýja sæng handa litlu mús. Hún er ennþá með ungbarnasængina sína en hún er nú "vaxin undan henni"....

Læt þetta gott heita í bili. Eigið ljúfar stundir. Silja jólabarn.

SaffraneldhúsiđSilja Dögg Gunnarsdóttir

Sæl veriði á þessum fagra sunnudagsmorgni.

Ég lauk við bók í gær sem heitir Saffraneldhúsið. Mæli með henni. Hún fjallar um ástina, hina sönnu ást sem lifir þrátt fyrir aðskilnað í áratugi....Söknuðinn og að finna sjálfan sig. Frelsið og þær fórnir sem þarf að færa fyrir það.
Það sem snart mig sértaklega var hversu æskuslóðirnar toga alltaf í mann, þrátt fyrir allt...æskan er grunnurinn, hún er það sem við erum, hún er hjartað.

Þið skiljið þetta þegar þið lesið bókina. kveð að sinni. Silja

AmySilja Dögg Gunnarsdóttir

Amy Winehouse er frábær! Hef verið að hlusta svolítið á hana undanfarið og horft á upptökur á youtube.com, bæði live, með og án hljómsveitar o.s.frv. Það er alveg sama hvað hún gerir, hún er brjálæðislega góð; nema þegar hún er orðin blindfull eða útúrdópuð.

Sorglegt hvernig komið er fyrir henni. Það er sjaldan sem svona ótrúlega hæfileikarík og öðruvísi söngkona kemur fram á sjónarsviðið og svo er hún ekki að meika tónleika út af óreglu...Bara 24 ára gömul.

Það er stundum gaman af því hvað heimurinn er lítill og hvernig Íslendingar virðast eiginlega vera út um allt; eins fá eins og við erum... Ég var á Spáni um daginn, í heimsókn hjá Sollu vinkonu en hún var einmitt að fara í matarboð um kvöldið til hjóna sem eru nýlega flutt til San Miguel. Svo þegar ég fer til Álaborgar, til Gumma bróður, þá hitti í vinafólk þeirra sem býr í sömu raðhúsalengju. Ungt fólk sem er nýflutt til Álaborgar, Íris og Hlynur. Þau koma að spila eitt kvöldið en þá kemur í ljós að mamma Írisar er konan sem Solla vinkona var að fara í heimsókn til úti á Spáni nokkrum dögum áður... Skrítið og skemmtilegt!

Sædís, viltu skila kveðju til stelpnanna næst þegar þú hittir þær!!!!


bestu kveðjur, Silja

UmbreytingarSilja Dögg Gunnarsdóttir

Sæl og blessuð. Þá er ég mætt eftir langt hlé. Lenti í gær.

Það var yndislegt að koma til Spánar, í húsið mitt, vera innan um allt dótið, gott veður og gaman að hitta vini okkar, Sollu og Jóa. Ég var samt mjög sátt að pakka niður. Nú er þessu tímabili lífs míns lokið og annað tekur við.

Það var náttúrulega kleppsvinna að pakka öllu niður og þrífa en þetta hafðist. Ég varð að vísu veik eftir átökin, ekkert alvarlega. Tímasetningin reyndar ömurleg. Þannig var að Solla og Jói buðu okkur í svakalega fínan mat síðasta kvöldið okkar. Ég var varla farin að borða þegar mér verður hálfillt, en læt sem ekkert sé og held bara áfram. Eftir klukkustund gat ég ekki leynt óþægindunum og orðin krítarhvít í framan. Ég neyddist því til að kveðja og fara heim. Ég var varla komin út úr bílnum þegar ég fer að kasta svona hrikalega upp. Man ekki eftir að hafa lent í öðru eins. Fékk ælupest síðast þegar ég var 11 ára. Ég hallaði mér yfir grindverk og skilaði öllu yfir í garð nágrannans. Mjög huggulegt, eða þannig. Síðan lá leiðin beint inn í rúm....

En við komumst af stað í flugið næsta morgun. Þetta hafðist allt saman og það var vel tekið á móti okkur í Álaborg. Yndislegur staður og Gummi og Eydís eru búin að koma sér vel fyrir þar. Þau eru ánægð í sínum störfum og Gunnar á mjög góðum leikskóla. Ég fíla Danmörku. Við höfðum það bara huggulegt; kjafta, drekka kaffi, kíkja í bæinn og svona...Ástrós fékk reyndar hita í einn sólarhring. Henni leiddist ekkert smá að þurfa að vera inni. Ógeðslega leiðinlegt. Þetta er í fyrsta sinn á hennar ævi sem ég var að mygla með hana; hún var svo ómöguleg. Vældi bara og vildi láta halda á sér, sem er mjög ólíkt henni. Við erum ótrúlega heppinn að þetta sé ekki dalegt brauð hjá okkur.

Við náðum ekki að fá okkur danska pulsu á meðan við vorum í Danmörku en við nældum okkur hins vegar í danskt vínarbrauð með kaffinu  á flugvellinum í Álaborg; og þvílík sæla!

Það er svo gott að vera komin heim, svo kemur dótið okkar eftir 2 vikur. Ég hef reyndar ekki hugmynd um hvernig við eigum að koma því öllu fyrir. Það verður ævintýralegt!

Vildi bara láta vita af mér. Set fljótlega inn nýjar myndir. Kær kveðja, Silja


Teljari

Innskráningar kubbur

Síđurnar mínar

Bloggarar

Smáfólkiđ