siljadogg.bloggar.is
Ţvílíkur dýrđardagurSilja Dögg Gunnarsdóttir
Dagar, eins og dagurinn í gær, eru góðir. Sól, frí í vinnunni, allir hressir...Ég fékk að sofa út:-) Vel tekið á móti mér með heitu kaffi og morgunmat þegar ég kom fram, knús og kossar. Við röltum okkur svo í smá heimsókn til mömmu og þeirra, niður í Mardal. Skuggi og Yrja eltu okkur alla leið og kötturinn "kjaftaði" nánast látlaust á meðan.Mardalsfólkið er á fullu að skipuleggja lóðirnar sínar. Mamma að spá í hvar þvottasnúrurnar eigi að vera og hversu marga rifsrunna hún eigi að fá sér. Við ætlum nú ekki að gera mikið í garðinum í sumar, heldur einbeita okkur að húsinu, klára þakkassann, rennur og slíkt. En þrátt fyrir það brunuðum við síðdegis (eftir að ég var búin að sitja úti í tvo tíma og brenna...) til Grindavíkur þar sem við náðum okkur í nokkra rabbabarahnausa hjá tengdó.
Þröstur og Ástrós Ylfa settu þá síðan niður þegar heim var komið. Hún var ægilega rösk að vinna í lóðinni með pabba sínum. Heimtaði að fá "vinnuhúfuna" sem afi Gunni gaf henni (þótti hún ljót og því var ákveðið að þetta yrði vinnuhúfan hennar, sem hún samþykkti...). Ægilega mikið að gera við að hjálpa pabba að moka og vökva.
Ég eldaði saltfiskrétt sem misheppnaðist vegna þess að ég gleymdi að útvatna fiskinn. Bauð í staðinn upp á gríska jógúrt með ferskum ávöxtum og bakaði nokkrar marmarakökur. Litla mús vakti með okkur til ellefu og rétt áður en við fórum í háttinn bauð ég upp á volga köku, kalda mjólk og pabbi dansaði Óla skans við prinsessuna. Hún elskar að dansa og syngja. Ljómar af hamingju. Hefur oft frumkvæðið, eins og í gær, réttir út hendurnar og býður okkur upp í dans. Yndislegt.
Þegar upp í rúm var komið var mín ennþá í svaka stuði. Fallegu augun hennar geisluðu af gleði. Við vorum hins vegar orðin ægilega þreytt. Þá sagði mín litla: "Ég svæfa mömmu og pabba, okey?" Svarið var: "Nei, þú átt að sofna með okkur, og loka augunum núna." Hún hugsaði sig um, tók utan um andlitið á mér, voðalega blíðlega og sagði: "Mamma, nú er komið sumar."
Hún fór líka á kostum í tónlistartímanum í leikskólanum í fyrradag. Fóstrurnar voru alveg hissa á henni og tónlistarkennarinn líka. Kennarinn var að prófa hjá þeim tónheyrn í fyrsta sinn, spilaði aðeins forspil af nokkrum lögum og þau áttu að segja hvað lög þetta væru. Ástrós Ylfa var sú eina sem áttaði sig strax og gat öll lögin rétt. Ég er rosalega ánægð með það. Ég valdi einmitt þennan leikskóla vegna tónlistarkennslunnar og því finnst mér sérstaklega gaman hvað hún nýtur sín vel í tónlistinni og gengur vel. Ég ætla að athuga hvort það sé ekki eitthvað í boði fyrir svona lítil börn í tónlistarskólanum næsta vetur.
Ég fékk líka ansi skemmtilega upphringingu í fyrradag. Það drýpur af mér montið. Ég er aðdáandi Þórbergs Þórðarsonar, það verður að játast. Hann er snillingur, fyndinn og ja...nánast fullkominn. Ég hefði viljað vera vinkona hans. Við hefðum sko alveg getað gleymt okkur í pælingum hér í denn. Afi Frissi er líka aðdáandi. Nema hvað að afi hringdi í mig og sagðist vera að lesa bók sem kom út í fyrra, "Í fátækralandi", og fjallar um ævi Þórbergs. Í bókinni er VITNAÐ Í BA-RITGERÐINA MÍNA". Ég er svo stolt að ég er að springja. Auðvitað alltaf gaman þegar vitnað er í ritgerðina en að það skuli hafa verið í bók um Þórberg- goðið mitt - það er betra en allt annað.
Svo já, ég verð að segja, til hamingju ég!
NýgiftSilja Dögg Gunnarsdóttir
Góðan daginn.Nú er ég orðin gift kona. Ægileg virðuleg. Kallið mig Frú Silju Dögg - "Góðan dag, frú Silja Dögg." Bannað að segja "Hæ, Silja".
Við áttum frábæran dag á laugardaginn var, gott veður, gott fólk sem mætti og samgladdist okkur, yndisleg athöfn, frábær prestur (séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir fyrrv. prestur í Grindavík) og skemmtileg veisla á eftir heima hjá okkur. Meiriháttar gaman og ljúft. Alger draumur. Síðan fórum við hjónakornin á Nordica og gistum þar um nóttina.
Við fengum mikla aðstoð fyrir brúðkaup í að gera húsið okkar fínt og útbúa veitingar. Allir boðnir og búnir til að hjálpa okkur sem var ómetanlegt. Þannig að nú er allt orðið ægilega fínt heima hjá mér og svo erum við mörgum, mörgum, mörgum, gjöfum ríkari. Þvílíkt gjafaflóð. Það kom okkur mikið á óvart og allt sérstaklega fallega gjafir. Við vissum varla hvernig við áttum að vera þegar við fórum að opna gjafirnar...
Stelpurnar nutu sín út í ystu æsar sem brúðarmeyjar og gestgjafar. Ástrós átti nokkra góða spretti í kirkjunni en Skuggi (sem var að sjálfsögðu líka viðstaddur) tók lífinu bara með ró. Mjög róandi og notalegt að geta horft á hann þegar tilfinningarnar ætluðu að hlaupa með mann í gönur;-)
Semsagt, meiriháttar dagur og mér líður frábærlega að vera orðin gift besta manni í heimi, vini og föður barnanna minna.
ástarkveðja, Frú Silja Dögg
Góđir páskarSilja Dögg Gunnarsdóttir
Lífið verður alltaf betra og betra. Hamingjan er í hverju horni. Ég á frábæra fjölskyldu, yndislega vini, er ófrísk og giftist manninum sem ég elska eftir nokkra daga. Hversu heppinn getur ein manneskja verið?
Ég fæddist reyndar í líknarbelgnum og á sunnudegi, þannig að það skýrir kannski hluta af þessu öllu saman...
NB ég fékk líka stórt páskaegg frá Freyju, ástaregg. Keypti það sjálf, vegna þess að mig langaði til þess. Eins er um svo margt. Ég hef nefnilega alltaf trúað því að fæst gerist af sjálfu sér; hver er sinnar gæfu smiður og að maður eigi að grípa gæsina þegar hún gefst (svo ég haldi mig nú bara við málsháttastemmningu helgarinnar). Hluti af lífinu er heppni en restin er undir okkur sjálfum komið.
Mín mesta lukka í lífinu er að hafa fæðst á Íslandi og að eignast góða foreldrar, sem byggðu mig upp í stað þess að brjóta mig niður. Með þetta í veganesti út í lífið; öruggt umhverfi, tækifæri, ást og umhyggju, eru manni flestir vegir færir.
Þröstur smíðaði sandkassa í gær handa Ástrós Ylfu og náði í sand útí Sandvík. Hún fær að leika sér í honum þegar við komum heim í dag, enda mikil útiveru- og sandkassamanneskja. Ég er búin að lofa að kaupa handa henni almennilega vörubíl. Hún vill fá þrjá, Ívar vinur hennar verður nefnilega að fá einn þegar hann kemur í heimsókn. Ætli sá þriðji sé ekki fyrir mig;-)
Hún leitaði að páskaegginu sínu á páskadagsmorgun og fann það undir sænginni sinni. Hún var svo glöð að það var hreint yndislegt. Litla fallega andlitið ljómaði af hamingju og það tísti í henni:-)
Stóra okkar kom heim í gærkvöldi, sæl og glöð. Ánægð með páskafríið fyrir norðan en líka ánægð að vera komin aftur. Hún ætlaði að vera hjá ömmu í Grindó í dag að baka kransatertu fyrir brúðkaupið. Hún verður nefnilega á Reykjum í Hrútafirði í næstu viku, í skólabúðum, og þarf því að gera ýmislegt fyrir brúðkaupið í þessari vikur. Kemur ekki aftur heim fyrr en 24. apríl og brúðkaupið er daginn eftir...
Þröstur er farinn vestur að sjósetja, loksins þegar lægir. Búið að vera svo hvasst fyrir vestan. Þannig að við stelpurnar verðum bara einar í nokkra daga... með Munda:-)
Ása...ég hlakka geðveikt til að hitta þig eftir nokkra daga...Þetta verður sko stuð!!!!!!!!!!!
Kv. Silja
Ţetta helst...Silja Dögg Gunnarsdóttir
Góðan daginn.Helstu punktar úr lífi mínu þessa dagana:
1. Mig langar mest í Freyju rís páskaegg - stórt!!!!
2. Fór í sónar á miðvikudaginn var, 20 vikna, allt leit vel út

3. Spaugstofan var frábær á laugardaginn þegar þeir tóku Pink Floyd lagið með íslenskum texta.
4. Vonandi fer tryllan á flot í vikunni, ef veður leyfir.
5. Ég hlakka til að gifta mig eftir tæpan mánuð.
6. Stelpurnar eru í góðum filing báðar tvær - hraustar og hressar.
7. Las eftirminnilega bók um helgina - Magnea eftir Sigmund Erni Rúnarsson. Magnea er lífsreynd kona...mikill spekingur. En af hverju þarf maður að reyna svona mikið í lífinu til að verða svona spakur? Af hverju getur maður bara ekki fæðst með þenna skilning á lífinu, dauðanum og mannfólkinu?
Læt þetta duga í bili. Þarf að fara að vinna

kv. Silja
KerlingaferđinSilja Dögg Gunnarsdóttir
Góðan daginn.Við Ástrós áttum sérstaklega góðan dag á sunnudaginn. Við fórum eftir hádegi til Reykjavíkur, strax eftir sunnudagaskólann. Hún lagði sig bara í bílnum á meðan ég keypti mér brúðarskóna (sem er by the way, algert æði:-)
Eftir tveggja tíma dúr í bílnum vaknaði blómarósin og við fórum í Kringluna að finna kjól á hana fyrir brúðkaupið. Það var nú hægara sagt er gert þar sem þemalitirnir eru rauður og hvítur...ég fann ekki neitt en hún fylgdi mér sæl og kát á milli búða. Fílaði sig í botn, svaka hress. Við skelltum okkur m.a. á kaffihús og það kann sú litla vel að meta. Eftir gott rölt um alla Kringlu fórum við í Smáralind að freista gæfunnar.
Við gengum, og gengum og gengum...fundum ekkert...nema hvað sú litla fann tvö voða sæt veski í Debenhams og krafðist þess að fá að kaupa þau. Ég leyfði henni að velja annað; bleikt, með fjöður, pallíettum og perluhandfangi...svo fékk hún gamlan gloss frá mér til að hafa í veskinu. Borgaði fyrir það sjálf og allt saman. það sem eftirlifði göngu um Smáralind var hún alltaf að stoppa af og til, sækja veskið sitt og setja á sig gloss...skrúfaði lokið svo vandlega á aftur, gekk kyrfilega frá því í veskið og hélt svo áfram för sinni í kápunni sinni og nýju skónum:-) Ekkert smá gaman að fylgjast með henni. Undir lok ferðalagsins fundum við voðalega sætan hvítan bómullarkjól í Zöru, mjög sumarlegur. Hún var heldur betur til í að máta, alveg æst í að máta eldrauða lakkskó með rennilás. Skoðaði sig lengi vel í speglinum, ægilega ánægð með það sem hún sá. Þar sem hún hafði verið svo góð og dugleg alla ferðina þá fékk hún bleikan ís í verðlaun og borðaði hann með bestu lyst.
Við enduðum Reykjavíkurferðina okkar í kaffi hjá Önnu frænku og co. Þar var nú aldeilis tekið vel á móti okkur eins og venjulega.
Þetta var bara frábær dagur, svo ekki sé meira sagt.
Bið að heilsa í bili.
Kv. Silja
Myndir af Sóley-upplestrarkeppninSilja Dögg Gunnarsdóttir
Linkur inn á myndasíðu vf.is frá stóru upplestrarkeppninni. Nokkrar myndir af Sóley.http://www.vf.is/ljosmyndavefur/upplestrarkeppni09/1/1/default.aspx
StoltSilja Dögg Gunnarsdóttir
Góðan daginn.Héðan er barasta allt gott að frétta. Ég get nú montað mig af því að Sóley vann upplestrarkeppnina í Akurskóla og stóra upplestrarkeppnin fór síðan fram sl. mánudag í DUUS húsum. Þar komu fulltrúar skólanna á Reykjanesi saman og lásu upp, okkur hinum til mikillar skemmtunar. Þetta var flott keppni og Sóley stóð sig mjög vel. Hún vann ekki til verðlauna en varð sjálfri sér til mikils sóma.
Við vorum rígmontin og ákváðum að bjóða henni í bíó í gærkvöldi, sem smá verðlaun fyrir frammistöðuna. Sáum Marley and Me í Smárabíói. Myndin var mjög góð, kom mér á óvart. Það var líka svo gaman að fara svona þrjú saman í bíó, en það höfum við ekki gert lengi.
Sóley fer svo norður um helgina en kemur aftur síðdegis á sunnudaginn.
Ég er með hugann við undirbúning brúðkaupsins, sem verður 25. apríl nk. Nú eru ekki margar vikur til stefnu og við erum að hnýta lausa enda. Þetta er allt að smella´. Á bara eftir að finna mér skó og undirföt og dress á Ástrós Ylfu. Þemaliturinn verður rauður, en ekki hvað?
Ég trúi varla að við séum að fara að gifta okkur. Þetta verður stór dagur.
Við Ástrós ætlum í sund eftir vinnu. Hún elskar að busla um, knúsar mömmu sína reglulega, dregur mig um í vatninu, lagar á mér hárið og hvíslar að mér af og til (mjög hrekkjótt í framan) að það séu pöddur í sundlauginni:-) Hún er alger rassalingur og krúttrófa. Hún er svo hraust og hress að maður er óendanlega þakklátur alla daga.
Ég fór í fyrsta foreldraviðtalið í leikskólanum sl. mánudag. Henni gengur mjög vel og er á fínum stað, varðandi þroska. Þó er hún með yfirburða minni og eftirtekt, og mjög forvitin, sem ég er mjög ánægð með að heyra. Góðir eiginleikar hjá litlu barni. Hún er afar hjálpsöm en hjálpsemin verður henni stundum fjötur um fót þegar hún fer að hjálpa þeim sem kæra sig ekki um hjálp. En þær segja að hún sé mikill kennari í sér og sé stundum mjög upptekin við að fylgjast með hinum krökkunum, þegar þau eru að gera verkefni, sem komi niður á hennar eigin einbeitingu. Eitthvað kannast mamman nú við þessar "ofurhjálpsemi" síðan hún var sjálf í leik- og grunnskóla
Annars nær hún ávallt mjög góðri einbeitingu í söng og þegar hún málar. Þá getur hún dundað sér langa stund. Gott mál.Nú í maí byrja þau í tónmenntakennslu einu sinni í viku. Ég hlakka mikið til en hún Geirþrúður mætir til þeirra í leikskólann og leyfir þeim að læra um hljóðfærin o.fl.
Bestu kveðjur í bili. Ég veit að ég er alger bloggletingi en það verður bara að hafa það. Stundum er ég í stuði og stundum ekki.
Knús á línuna.
Silja
Löng ţögnSilja Dögg Gunnarsdóttir
Góðan daginn.Þetta var orðin hallærislega löng þögn...I´m back.
Nýjustu fréttir af okkur eru að ég er búin að kaupa brúðarkjólinn. Hann er algert æði. Við ætlum að gifta okkur í Innri Njarðvíkurkirkju þann 25.apríl að öllu óbreyttu. Nánari plön eru ekki tilbúin.
Nú, og svo get ég sagt frá því núna....að ég er ófrísk
Komin 14 vikur og allt gengur vel. Við erum í skýjunum með það og eigum þá von á öðrum erfingja 10. ágúst. Svo ég fæ annan ljónsunga í safnið.Þröstur er búinn að vera mjög veikur. Fékk svona heiftarlega sýkingu í handlegginn fyrir 11 dögum síðan. Lá heima í nokkra daga með rúmlega 40 stiga hita, át fúkkalyf, en honu versnaði bara. Að lokum var hann lagður inn á spítala og lá þar í þrjá sólarhringa. Nú er hann kominn heim en mætir á 6 tíma fresti, upp á sjúkrahús, til að fá fúkkalyf í æð. Það verður þannig áfram næstu daga og svo þarf hann að halda áfram á lyfjakúr í nokkrar vikur eftir það. Það er greinilega stórmál að fá svona sýkingu.
Það er bara gaman í vinnunni hjá mér. Skjalastjórnunarverkefnið gengur vel og ég komst að svolitlu óvæntu sl. föstudag. Þannig er að ráðgjafinn okkar, frá Gagnavörslunni, hún Gunnhildur er stórfrænka mín. Við erum búnar að vinna náið saman í marga mánuði og svo kom það upp úr kafinu sl. föstudag að við erum hvorki meira né minna en þremenningar. Sigurjón, móðurafi hennar, var nefnilega bróðir föðurömmu minnar, Ingibjargar Danivalsdóttur. Svona er þetta land lítið.
Helgin er búin að vera indæl. Við fórum á laugardagskvöldið í þorramat til mágkonu minnar í Hafnarfirði og bróðir Þrastar, og fjölskylda, sem búa á Akureyri, kíktu til okkar í morgunkaffi í gær. Við Ástrós fórum svo í bíltúr upp í hesthúsahverfi seinnipartinn. Henni fannst rosa gaman að sjá hestana út um gluggann, ég skrúfaði niður rúðuna, svo hún gæti séð þá betur, en þá sagði hún bara: "oj, tútalitt" (oj, kúkalykt). Þrátt fyrir lyktina var hún mjög ánægð með heimsóknina en við kíktum aðeins í kaffi til Unnnars og Maríu. Þau eiga voða huggulegt hesthús þarna. Ástrós Ylfa ætlaði ekki að vilja fara aftur í bílinn, svo gaman þótti henni að heilsa upp á hestana. Hún er ægilega mikil dýrakerling, eins og við öll í fjölskyldunni. Því næst var haldið í heimsókn til Ingibjargar frænku. Hún á tvo ketti og einn hvolp, hana Dimmu. Dimma er mjög kát og vill hoppa og glefsa í gesti og gangandi. Ástrós Ylfu var nú ekki vel við það, skammaði hana af mikill ákveðni.
Á morgun byrjum við mæðgur í sundskóla barnanna. Förum til Helgu Eiríks, kennara á námskeið í Akurskóla fyrir 3-6 ára börn. Það verður sko stuð og okkur hlakkar mikið til. Ástrós Ylfu finnst mikið til koma að fá að fara á sundæfingar eins og Sóley systir.
Sóley er líka farin að æfa fótbolta og er að fíla það í ræmur. Hún er ákveðin í að halda áfram en verður líka í sundinu og KFUK. Þannig að það er nóg að gera hjá henni. Það hentar henni ágætlega að hafa nóg að gera. Heimalærdómurinn er mjög lítill, og nánast enginn hjá henni, þegar hún kemur heim kl. 14 þannig að okkur finnst fínt að hún hafi fasta tíma í íþróttum á hverjum degi. Æfingarnar lenda samt ekki á sömu dögum, þannig að þetta kemur bara vel út.
Bless í bili,
Silja
Um migSilja Dögg Gunnarsdóttir
Sló inn afmælisdaginn minn á facebook og fékk þessa umsögn. Mér finnst skemmtilega mikið til í þessu.......16. desember.
You always follow the good and the right instead of listening to your heart. Another word, you are a perfectionist. You care for every word people say about you. You often seen isolated while you are, by nature, curious and a dreamer who is ready to get over the edge to make your dream comes true. Your Love, You often fall in love with a person who is much different from you, in age and other aspects. Your relationship grows on friendship. Love at fist sight is not your style.
Annars er ég á leið í Húsafell um helgina með góðum vinum. Það verður eflaust ótrúlega gaman en ég er með nóg af þorramat í farteskinu, þó ekki súrmeti.
Svo ég tjái mig nú aðeins um pólitíkina, sem ég er annars ekki vön að gera á þessari síðu, þá gleðst ég yfir nýrri forystu í Framsókn og hef endurnýjað trú mína á flokknum. Nú á hann allavega einhverja möguleika. Svo er bara spurning hverjir verða í framboð hér suðurfrá...
Ég styð eindregið mótmælin á Austurvelli en mótmæli um leið ofbeldi og skemmdarverkum.
Ég skil reyndar ekkert í því af hverju það er ekki búið að fangelsa eitthvað af þessu bankaliði og setja yfirmenn í Seðlabanka og í Fjármálaeftirliti frá embættum. Menn sitja þarna áfram sallarólegir á meðan tæplega 400 hundruðu manns á Selfossi eru eltir upp og handteknir vegna ógreiddra gjalda... Ekkert af þessu kemur heim og saman í kollinum á mér.
Annars vegar finnst mér sorglegt hvernig komið er fyrir okkur, ömurlegt að sjá þetta ofbeldi í sjónvarpinu, reiðina og allt það. En hins vegar býður þessi staða upp á nýja tíma, endurskoðun og vonandi betra Ísland. Nú þarf að nota á tækifæri og stinga á spillingarkýlin og koma í veg fyrir að svona nokkuð gerist aftur. Þetta er hluti af því að þroskast sem þjóðfélag en það eru aðeins um 60 ár síðan við vorum skilgreind sem þróunarríki! Ótrúlegt hvað við höfum komist langt, þrátt fyrir allt.
Maður heyrir í fólki sem óttast yfirvofandi breytingar. Frasar sem þessir; "Ef núverandi ríkisstjórn fer frá völdum og ráðandi flokkar, hvað tekur þá við...? Kannski eitthvað ennþá verra...?"
Hver veit. En í mínum huga er þetta eins og að vera í slæmu hjónabandi. Ef hjónabandið er orðið það slæmt að staðan er vonlaus, þá verður maður að slíta því-no matter what. Það borgar sig ekki að hanga í vonlausu ástandi vegna hræðslu við hið óþekkta - maður á að láta vaða!
Ég hlakka amk til kosninganna í vor því ég geri ráð fyrir að maður fái að sjá ný andlit á framboðslistum og eignist e.t.v. trú á íslensk stjórnmál að nýju.
Kær kveðja og góða helgi alle sammen!
Skemmtileg helgiSilja Dögg Gunnarsdóttir
Góðan daginn.Nú er helgin að baki. Hún var mjög góð hjá okkur öllum. Sóley fékk að vera hjá ömmu í Grindó á laugardaginn og við Þröstur vorum að brasa ýmislegt með Ástrós Ylfu. Fórum m.a. upp í nýopnaða Virkjun á Vellinum þar sem verið var að kynna nýjar námsleiðir hjá Keili og námsframboð m.a. hjá FS og MSS. Margt mjög sniðugt og alveg nýtt á Íslandi. Þessi Virkjun er frábært framtak og hið sama má segja um Keili. Auðvitað tekur tíma að uppskera en þegar hún kemur þá verður hún ríkuleg, segi ég.
Eitt það besta sem gat hent þetta svæði hér var að herinn færi. Nú horfir fólk til framtíðar, eigir ný tækifæri og það er virkilega spennandi.
Ástrós Ylfa fann sykurmolakar á kynningunni og nældi sér í nokkur skipti. Spurði voða fallega; "baja einn?" með blíðustu röddinni sinni og fallega augnaráðinu. Auðvitað sagði mamman já. Svo kom hún eftir smá stund með annan: "baja einn enn"...ægilega sæt...ætli hún hafi ekki haft svona 6 stk upp úr krafsinu...svona er þetta;-)
Við kíktum á flottan rólóvöll á Vellinum. Sú litla ætlaði aldrei að þora að renna sér í gegnum rennibrautarrör, skrækti móðursýkislega og argaði "Mamma nei"! (NB ég var ekki að reyna að ýta henni niður, heldur beið niðri...). Lét sig að lokum falla afturábak svo hún þyrfti ekki að renna niður. Gerði aðra tilraun þegar pabbi kom aðvífandi. Fannst gott að hafa hann uppi hjá sér til öryggis. Lét sig loksins gossa og var ægilega rogginn þegar hún kom niður:-)
Við gáfum líka öndunum brauð. Þar hittum við ömmu og afa sem voru í gönguferð. Ástrós vildi nú ekki mikið tala við þau en talaði svo um þau næstu tvo daga. Rifjaði upp hitt og þetta um ömmu og afa...Að lokum var tekið til í skúrnum og bíllinn þrifinn í skúrnum (lúxus að eiga aftur bílskúr). Nú og ekki má gleyma Bónus ferðinni en það er nú venjulega einn af hápunktum vikunnar hjá Ástrós Ylfu. Það sem henni finnst gaman að fara í Bónus. Hún græddi líka helling að þessu sinni; þegar við vorum að bíða eftir að Þröstur kæmi að sækja okkur þá fann hún slatta af hlaupi einhvers staðar og tróð upp í sig og fyllti vasana. Ægilega ánægð. Með fullt af nammi. Fann líka gullpening sem hún gaf pabba sínum þegar hann kom. Svo sannarlega ferð til fjár fyrir hana. Þannig að þetta var viðburðaríkur og skemmtilegur fjölskyldudagur.
Við Ástrós skelltum okkur í sunnudagaskólann í Keflavík í gærmorgun. Ég hef verið að fara með hana í Njarðvíkurkirkju undanfarna mánuði og það hefur ekki gengið nógu vel. Hún er 90% tímans að vesenast; fara bakvið altarið, klifra ofaní gryfju við gluggann, stelast í predikunarstólinn, hlaupa fram og stela kexi...o.s.frv. Nennir ekkert að fylgjast með. Svo fórum við semsagt í Keflavíkurkirkju í gær og þá snerist dæmið alveg við. Hún sat 90% tímans og fylgdist með af áhuga. Prógram og stjórnendur sem höfða mun betur til hennar þannig að ég er að hugsa um að halda áfram í Keflavík með hana.
Dagurinn í gær var svo fagur. Glitrani hvít mjöllin lá yfir öllu og fjólubleik birtan lýsti upp himininn. Snæfellsjökull tignarlegur við sjóndeildarhringinn. Ég hugsaði með mér; ég bý svo sannarlega í paradís. Svona er hún, friður og fegurð.
Við fórum út að leika með hundinn svo vildi Ástrós Ylfa, að eigin frumkvæði: "fara að lúlla sér". Hún fékk það en svo drifum við okkur með hana í bíó þegar hún vaknaði um fjögurleytið. Sáum Skoppu og Skrítlu. Fyrsta bíóferðin hennar. Ég hafði vissar efasemdir. Hélt að hún gæti nú ekki setið í bíói í eina klukkustund. En jú, hún neitaði að fara þegar myndin var búin. Varð frekar reið þegar ljósin voru kveikt...vildi sjá meira. Þannig að það er aldrei að vita nema önnur bíóferð sé á dagskrá bráðlega.
Þröstur fór að skjóta svartfugl í gær með kunningja sínum. Þeir voru allan daginn á sjónum og náðu nokkrum fuglum. Komu sælir í land. Ég er að venjast svartfuglinum. Hann er ágætur ef maður marinerar hann í nokkra daga, 2-5, í malti í ísskápnum. Svo bara að krydda og steikja, ekki samt of mikið því þá verður hann ólseigur.
Læt þessari upptalningu lokið í bili og hafði það öll sem best. kv. Silja